Vesturbær Miðborg Hlíðar Háaleiti og Bústaðir Breiðholt Árbær Grafarvogur Laugardalur Grafarholt og Úlfarsárdalur Kjalarnes

Um Betri hverfi

Betri Reykjavík – Betri hverfi er samráðsvefur íbúa Reykjavíkurborgar og stjórnsýslu borgarinnar um smærri nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni í hverfum Reykjavíkur.

Hægt er að setja inn hugmyndir sem haft geta áhrif á umhverfi og möguleika til útivistar og samveru, geta haft áhrif á aðstöðu eða tækifæri til leikja eða afþreyingar, hvetja til aukinna hjólreiða, bæta aðstöðu og möguleika gangandi eða bæta aðstöðu fyrir notendur strætó – sjá nánar…

Mikilvægur þáttur í samráði íbúanna felst í því að þeir kynni sér hugmyndir annarra, bæti jafnvel við þær eigin rökum og gefi þeim vægi sitt. Þannig birtist vilji þeirra sem með þessum hætti taka þátt í forgangsröðun hugmyndanna.

Þeir sem setja inn hugmynd eða vilja taka þátt í samráði með þessum hætti um hverfaverkefni verða að vera skráðir notendur samráðsvefsins. Skráðir notendur Betri Reykjavíkur eru sjálfkrafa notendur að Betri Reykjavík – Betri hverfi. Öllum stendur til boða að nota almenningstölvur í bókasöfnum og þjónustumiðstöðvum borgarinnar í þessu skyni.

Fjármagn til þessara hverfaverkefna er alls 300 milljónir og skiptist á milli hverfanna samkvæmt fastri fjárhæð og íbúafjölda – sjá nánar…

Betri Reykjavík – Betri hverfi er opinn fyrir móttöku hugmynda og samráði íbúa vegna þessara smærri hverfaverkefna, til 23. janúar 2012. En þá metur starfsfólk borgarinnar framkvæmanleika hugmyndanna, s.s. kostnað. Hverfaráðin stilla síðan upp allt að 26 verkefnum fyrir hvert hverfi sem íbúum Reykjavíkur gefst tækifæri til að kjósa um – sjá nánar…

Kosið er um verkefnin með rafrænum hætti í enda mars 2012. Íbúar Reykjavíkur geta kosið verkefni í hvaða hverfi sem er, óháð búsetu, en þó aðeins í einu hverfi. Kosningaréttur miðast við 16 ára aldur. Niðurstaðan um val verkefna er bindandi – sjá nánar…