|
Á þessari síðu er fjallað um:
Nýframkvæmd eða viðhaldsverkefni – Umhverfi, útivist, aðstaða, samgöngur gangandi og hjólandi – Kostnaður einstakra hugmynda – Greinargóð lýsing mikilvæg
Þegar hugmynd er sett inn, þarf fyrst að skrá sig á vefinn. Síðan þarf að huga að því að heiti hennar og lýsing sé skýr, og loks að merkja við hvaða hverfi hún tilheyrir. Einnig er mikilvægt að metið sé hvort hún falli að þeirri skilgreiningu sem kemur fram hér fyrir neðan.
Nýframkvæmd eða viðhaldsverkefni - Þegar ný hugmynd er sett inn þarf að velja hverfi og meta hvort hún telst vera smærri nýframkvæmd eða viðhaldsverkefni. Munurinn á þessum tveimur verkefnaflokkum er í megin atriðum sá, eins og orðin gefa til kynna, að:
Með nýframkvæmd er verið að óska eftir nýrri framkvæmd eða verkefni í hverfinu.
Með viðhaldsverkefni er verið að óska eftir lagfæringu á einhverju sem fyrir er í hverfinu.
Ef óvissa er um hvorum flokknum hugmynd tilheyrir er sá líklegri valinn. Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu leiðrétta flokkunina á síðari stigum.
Umhverfi, útivist, aðstaða, samgöngur gangandi og hjólandi – Þegar hugmynd er sett inn á Betri Reykjavík – Betri hverfi, þarf hún einnig að falla að eftirfarandi skilgreiningu:
Sem dæmi um slík verkefni má nefna: Bekkir, aukinn trjágróður, dvalarsvæði, berjarunnar, útilistaverk, fegrunarverkefni, og fleira.
Vera verkefni er haft getur áhrif á aðstöðu eða tækifæri til leikja eða afþreyingar.
Sem dæmi um slík verkefni má nefna: Bæta leiksvæði, endurnýja leiktæki, lagfæra sparkvelli, og fleira.
Vera verkefni sem hvetur til aukinna hjólreiða, bætir aðstöðu og eða möguleika gangandi eða bætir aðstöðu fyrir notendur strætó.
Sem dæmi um slík verkefni má nefna: Stígtengingar, lýsing gönguleiða, lagfæring gönguslóða, og fleira.
Kostnaður einstakra hugmynda – Þegar hugmynd er sett hér inn á samráðsvefinn er mikilvægt að reynt sé að gera sér grein fyrir kostnaðinum við að framkvæma hana. Mikilvægt er að huga að því að kostnaður sé ekki meiri en það fjármagn sem hverfið hefur til umráða, annars vegar til nýframkvæmda og hins vegar til viðhaldsverkefna sjá nánar… . Þau verkefni sem starfsfólk borgarinnar mun meta kostnaðarmeiri en þessari upphæð nemur (sjá nánar… ), mun ekki verða kosið um á síðari stigum.
Erfitt getur verið að áætla kostnað við framkvæmd einstakra hugmynda, en enginn ætti að láta óvissu um það aftra sér frá að setja inn hugmynd á Betri Reykjavík – Betri hverfi.
Greinargóð lýsing mikilvæg - Þegar ný hugmynd er sett á samráðsvefinn, er mikilvægt að huga vel að því að heiti hennar sé lýsandi. Einnig getur skipt máli að rökin fyrir hugmynd séu skýr, þannig að aðrir eigi auðvelt með að átta sig á hvað um er að ræða. Þessi atriði geta skipt miklu um hvort hugmyndin nær athygli annarra íbúa og fær það vægi sem til þarf til að um hana verði kosið á síðari stigum. Greinargóð lýsing á hugmyndinni getur jafnframt auðveldað starfsfólki borgarinnar að meta hana, s.s. kostnaðinn við framkvæmd hennar.
Notendur á Betri Reykjavík – Betri hverfi eru hvattir til að gefa sér góðan tíma til að skoða hugmyndir annarra, taka afstöðu til þeirra og gefa þeim vægi sitt, annað hvort með því að styðja þær eða vera á móti þeim. Í þessu er ekki síst hið mikilvæga samráðsferli íbúanna fólgið.