Sigríður Ragnarsdóttir bætti efni við Búa til útigerði fyrir hunda í Reykjavík
|
4 more discussions in Búa til útigerði fyrir hunda í Reykjavík |
Fólk sem gerir athugasemdir
|
|
4 more discussions in Búa til útigerði fyrir hunda í Reykjavík |
Fólk sem gerir athugasemdir
|
Sammála þessu. Hundaeigendur hafa misst Geldingarnes. Því var lokað af því að starfmenn borgarinnar töldu að það væri minna mál að hirða um lokað svæði en opnu. Nú er búið að loka Geirsnefi líka nema fyrir gangandi. Þetta er gert undir því yfirskyni að fólk sé að keyra í kringum hundana. Mér finnst þessi boð og bönn lágkúruleg. Ef hundagirðing verður sett upp í Klambratúni þá vona ég að fólk hirði um hundana sína. Erlendis er þetta sjálfsagt mál. Svo væri gaman að fá einn ljóskastara (lágþrýstan sodium) til að lýsa út á túnið á Geirsnefi. Staurinn er til staðar. það þyrfti bara að bæta einum kastara sem vísaði í hina áttina.
Það eru komnar allavega 7 hugmyndir núna varðandi hundagerði í borginni að þessari meðtalinni. Ég hvet hundaáhugafólk að styðja allar þessar hugmyndir svo við fáum hundagerði sem víðast í borginni. Hugmyndirnar heita:
Hunda og fjölskyldugarð í miðbæinn,
Afgirtur hundagarður í Laugardalinn takk fyrir,
Hundaleiksvæði í nágrenni við miðbæinn,
Hundagerði í vesturbæinn og víðar í borginni,
Hundagerði á Klamratún,
Betri aðstöðu fyrir hundana á Geirsnefi og fleiri staði,
Ánægjulegt að sjá allar þessar hugmyndir um bætta aðstöðu fyrir hunda og eigendur þeirra. Ég styð þær allar. Nú vona ég að borgaryfirvöld taki þetta til athugunar. Hjá umhverfissviðið RVK starfa nú tveir starfsmenn.
„Hlutverk Hundaeftirlits Reykjavíkur er að fylgja eftir samþykkt um hundahald í Reykjavík. Hundaeftirlitið veitir leyfi til þeirra er uppfylla skilyrði til hundahalds í borginni, hefur eftirlit með hundahaldi og stuðlar að ábyrgu hundahaldi í Reykjavík. Markmið hundaeftirlitsins eru að bæta hundahald í Reykjavík með aukinni fræðslu til hundaeigenda og borgarbúa og að fækka óskráðum hundum í borginni.“
Það er m.a. stuðlað að ábyrgri hundaeign með því að bjóða afslátt af ársgjaldi fari fólk á hundanámskeið sem er mjög gott.
En það að bjóða uppá fleiri útivistastaði þar sem hunda meiga ganga lausir er frumforsenda til þess að stuðla að ábyrgu hundahaldi. Það ætti ekki að þurfa að vera dýrt eða flókið í framkvæmd. Það þarf að sinna þessum málaflokki hjá borginni. Reglur um hundahald eins og þær eru núna eru að mörgu leiti úreltar.