Nýta þá sem fá laun frá borginni í formi atvinnuleysisbóta til samfélagsvinnu svo sem ruslatínslu og annars. Mín hugmynd er að þiggjendur atvinnuleysisbóta skili aðeins 8 vinnustundum á viku í eitthvað samfélagsverkefnið sem skilyrði fyrir bótum því þá hafa þeir 4 aðra daga vikunnar í atvinnuleit. Með þessu væru þeir sem ekki nenna að vinna sigtaðir úr atvinnuleysisbótakerfinu og samfélagið fengi eitthvað fyrir aurinn sem það hefur lagt í atvinnuleysisbæturnar.
Mér finnst nú það lykta af þrælahaldi að "láta" einhvern vinna.Þaðmætti segja gefa kost á að vinna. Það gæti hjálpað fólki að fá aðra vinnu. Einnig ætti
borgin að bæta einhverjum þúsund köllum við atvinnuleysislaunin. Það eru nefnilega laun sem eru greidd, eftirlaunafólki, öryrkjum, og atvinnulausum, ekki "bætur" = ölmusa!
Íslenska