Á sólarströndum erlendis er oftast hægt að finna hluta af ströndinni fyrir nektarsinna (nudists), sem vilja einfaldlega njóta vatnsins berrassað. Það er ekkert kynferðislegt á bakvið þetta og snýst eingöngu um að fá að njóta sín í afslöppuðu umhverfi meðal annara nektarsinna. Hér á Íslandi er engin strönd, en við höfum sundlaugar. Það er örugglega fullt af ferðamönnum sem og íslendingum, sem myndu kunna að meta þessa nýjung. Þetta er einnig þroskandi þar sem að margir tengja nekt við kynlíf.
Ég tel að þessi hugmynd geti orðið að mikilli bragarbót og sértímar fyrir nakta í sundi og jafnvel á ylströndinni myndu minnka tepruskapinn hjá okkur og krefjast endurskoðunar á lögreglusamþykkt um "særða bligðunarkennd". Nektarhlaup á Hróarskeldu fékk mikið umtal, en hér á landi setjum við mann á áttræðisaldri í fangelsi fyrir að vera nakinn heima hjá sér og úti á svölum.
gæti virkað ef þettað væri gert í ákveðnum sundlaugum eins og einni eða tveimur í svona 1-2 klst á dag gæti verið fínasta hugmynd
Íslenska