Með viðbótum fyrir Íslensku
Persónulega finnst mér myndböndin geta verið betri (útlitslega séð) og myndi ég útfæra það með því að taka hreyfimynd af tússtöflu (ala RSAnimate). Það er líklegt er að þess þyrfti við hvort eð er (vegna tungumálaverndar).
Að sjálfsögðu þyrfti að íslenska myndböndin og fá færustu kennara landsins til að matreiða efnið eins vel og hægt er. Þar með fengju allir að njóta hæfileika bestu kennara landsins en ekki bara einn og einn bekkur. En það er kostur við að hafa þetta ekki of flókið, skraut og dúllerí má ekki draga athyggli frá nemendum eða draga niður hve hratt er hægt að gera myndböndin amk fyrst um sinn meðan er verið að koma sér upp sæmilegu safni.
En Það mætti gera prufu á þessu á ensku á eldri nemendum án mikils kostnaðar og taka síðar ákvörðun um að íslenska allt og leggja kannski aðeins meira í gerð hvers myndbands.
Íslenska