Netfang

Lykilorð


Gleymt lykilorð
  • Nýjustu rök
    Tökum Svíþjóð sem fordæmi og plöntum tré meðfram götum til að auka heilsu og þægindi gangandi vegfaranda. Minnkum svifryk, bætum loftið og aukum skjól frá rigningu fyrir gangandi vegfarendur. Það getur enginn sagt mér að þetta sé of mikið mál því þetta er eitt af auðveldustu framkvæmdum sem hægt er að gera og hefði átt að vera búið fyrir löngu.
    3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
    Sem tónlistamaður sjálfur veit ég hversu erfitt er að starfa á Íslandi, Það spilar mikið inní hvern maður þekkir hversu vel manni gengur. Ef hljómsveitir koma saman og spila á opnu svæði á föstum tíma reglulega þannig að hlustendur geta treyst á það að það sé eitthvað að gerast í miðbænum, þá geta mannleg samskipti orðið miklu opnari. Sérstaklega ef það er kaffihús/veitingar með borð og stóla í kring svo fólk hafi fleiri ástæður til að stoppa við. Plús það gerir fólk vísara að rölta um bæinn.
    6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Reykjavík er ekki stór borg! Sporvagnar finnast bara í gömlum eða stórum borgum úti í útlöndum. Það er alveg nóg að hafa strætó, og gáfulegra líka, vegna þess að það yrði alltof dýrt og mikið vesen að koma með sporvagna til Íslands.
    4 aðilum fannst þetta gagnlegt, 5 fannst það ekki.
    Sammála, mikil vinna var lögð í innslátt ábendinga hjá borgarbúum á 1,2 Reykjavík á sínum tíma.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
    Vegna mögulegrar hættu á mengunarslysum á vatnsverndarsvæðum á framkvæmdatíma eða að galvanhúð háspennumastrana flagni af og dreifist yfir verndað svæði, felst of mikil áhætta í þessari framkvæmd. Af þeim sökum ber að hætta við þessa aðgerð.
    3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Stórhættulegir sumir göngustígar á borgarlandi í fossvogi vegna misfella, t.a.m. niður dalinn frá Bústaðavegi
    6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Skapa flóamarkað í Reykjavík þar sem borgarbúar geta komið með dót úr geymslunni sinni og selt án þess að þurfa borga leigu fyrir aðstöðu líkt og Kolaportið, en þar eru nú uppsettar verslanir meira og minna og dýr leiga fyrir bílskúrssölu með hliðsjón af óvissunni um sölu! Slíkt væri vettvangur fyrir mannlíf og endurnýtingu varnings.
    13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    styður Grenndargáma á fleiri staði Í vinnslu
    Danir, Þjóðverjar og Svisslendingar og eflaust margir fleiri hafa það þannig og það virðist virka. Þar er meira að segja sér gámur fyrir glært, grænt og brúnt gler svo varla væri of erfitt fyrir Reykjavík að hafa einn gám undir gler hér.
    6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
    Víða í borgum erlendis eru strætisvagnar litlir sendibílar á stærð við t.d. Toyota High-Ace. Þeir hafa ekki eiginlega tímatöflu heldur keyra sífellt sama hringinn. Maður veifar og bíllinn stoppar þar sem hann er. Ekki er þörf á eiginlegum stoppustöðvum en þær eru þó til staðar sem skjól ef veður er slæmt. Hægt er að kaupa marga svona bíla fyrir verð eins strætisvagns eins og þeir eru hjá okkur í dag.
    5 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
    Til prýði og aukins skjóls mætti gjarnan gróðusetja fleiri tré meðfram Bústaðavegi á móts við efstu löndin í fossvogi, þ.e. Efstaland, Gautland, Hörðaland, Kelduland og Markland
    4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Kjöraðstæður eru í fossvogsdal fyrir skógrækt og sést það best á núverandi gróðri þar neðst í dalnum. Slíkt myndi alltaf skapa logn þar og gera samhliða gönguleiðir og ýmsa útivistarmöguleika fyrir almenning
    6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
    Það er mikilvægt að auka framboð á tómstundastarfi fyrir aldurshópinn 16-25 ára.
    4 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Yfirbyggja mætti Laugaveg að hluta og gera að göngugötu og verslunarmiðstöð :-) Glerþakið mætti vera opnanlegt og rafknúið þegar þannig viðrar !
    3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
    Orkuveita Reykjavíkur á nóg af vatni og gosbrunnar eða vatnslistaverk gera umhverfið aðlaðandi, lifandi, náttúrulegra og skapa ákveðinn glæsileika! .... No! - Yes ! :-)
    7 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
    Það eru til ljós á nokkrum stöðum sett upp í tilraunaskyni, sem virka þannig að þegar fólk hefur gengið yfir götuna, þá breytist ljósið nokkuð hratt fyrir gangandi og gult, svo grænt komi á umferðina eftir akbrautina. Mun ódýrari og skemmtilegri lausn en boðleg undirgöng. Það á sennilega eftir að gera úttekt á hvernig þetta hafi virkað. Er að mig minnir við Sundlaugaveg rúmlega hundruð (150 -200 ?) metrar vestur af Laugardalslaug og við Blindraskólanum í Hliðunum.
    6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 3 fannst það ekki.