-
Nýjustu rök
Skuldir borgarinnar eru vel yfir 200 milljarðar: http://bit.ly/ZorNX4 Bara afborganir af langtíma skuldunum verða yfir 20 milljarðar á þessu ári. 20 MILJARÐAR!!! Ímyndið ykkur hvað við gætum gert fyrir það fé: Bæði aukið framkvæmdir OG létt undir með fjölskyldum með því að lækka útsvarið. Nobrainer.
Hætta að koma þeim skilaboðum að Hverfisgata sé stórhættuleg.
Gatnamótin eru á leiðinni í skólann fyrir fjölda barna í hverfinu, og einnig er lítil hverfissjoppa á horninu og bæði börn og fullorðnir sem fara yfir götuna á leið þangað. Það eru þónokkrar hraðahindranir á Langholtsveginum en þarna er spölur á milli þeirra og því miður of algengt að ökumenn gefi því í.
Ég hef margoft haft samband við gatnamálayfirvöld bæði í Reykjavík og Mosfellsbæ og þar hafa enbættismenn gjarnan bent hver á annan, en eru það rétt vinnubrögð? Það má vel vera að þetta tilheyri frekar öðru sveitarfélaginu en hinu, en á að vinna svona? Þetta verður að laga og það strax.
styður
Mannlífstorg við Laugalæk
Við Laugalækinn er bílastæði sem mér finnst að ætti að vera torg þar sem íbúar hverfisins sem bregða sér í búðirnar geta sest niður með kaffibolla og spjallað. Þetta myndi styrkja verlunina í hverfinu og laða að fleiri kaupmenn með spennandi vöru. Auk þess er skemmtilegra og meira hvetjandi að versla í huggulegu umhverfi.
Þegar keyrt er að brekku við Dalhús þá er erfitt að sjá hvort að það sé að koma bíll upp brekkuna. Og líka þegar keyrt er upp brekkuna þá er þetta ekki gott horn og nær ómögul að sjá hvort bíll sé að koma.
Uppruni:
http://halldoraoa@hotmail.com
þetta er svæði sem er ekkert nýtt núna en býður upp á útiveru fyrir íbúa hverfisins, í dag er langt í leiktæki fyrir börn sem búa þarna megin á holtinu, þurfa að fara yfir nóatúnið til að komast á Nóaborg(leikskóli), Leiksvæði Klambra er læst og langt að fara í leiktæki hinum megin á holtinu
Við Nauthólsveg er umferð gríðarlega hröð, framúrakstur er sjáanlegur enda er vegurinn beinn og breiður án þrenginga. Leikskólinn stendur við götuna og Barnaskólinn þar fyrir aftan. Börn hjóla í og úr skóla, heilu bekkirnir ganga daglega í Valsheimilið og í kring og að auki stendur leikvöllur leikskólans beint við götuna. Það þarf ekki að spyrja að leikslokum ef bíll á 70-80km hraða keyrir á barn. Við biðjum um tafarlausar aðgerðir. Lögreglan hefur mælt ökutæki á 78km/klst beint við skólann.
styður
Gangbrautir í Hamrahverfi
Lokinhamrar skipta Hamrahverfinu í innri og ytri hring. Í innri hringnum eru m.a. leikskóli, grunnskóli og dagmæður. Hins vegar eru engar gangbrautir yfir Lokinhamra. Það eru örfáar þrengingar til að hægja á umferðarhraðanum en það er ekki það sama. Væri hægt að gera nokkrar gangbrautir til þess að börnin (sem og fullorðnir) væru aðeins öruggari í umferðinni?
Það hlítur að vera einfalt mál fyrir Borgaryfirvöld að skikka lóðareigendur til þess að lagfæra lóðina. Það er óþolandi að í einum elsta hluta Reykjavíkur standi opin lóð þar sem jarðvegur fýkur yfir nánasta umhverfi ef það hreyfir vind. Einnig er algengt að fólk noti lóðina til þess að losa sig við sorp ef það kemur að lokuðu hliði hjá Sorpu hinumegin við götuna. Einnig er talsverð slysahætta fyrir börn á svæðinu.
Fólk þarf að geta reitt sig á almenningssamgöngur úr hverfinu til að komast í og úr vinnu (án þess að það taki a.m.k. klst. hvora leið) til þess að nýta sér strætisvagna.
Grafarvogurinn sem er eitt af stærstu hverfum borgarinnar ef ekki það stærsta er með 3 "útkomuleðir". Það sýndi sig best í ófærðinni í vetur að allar þessar leiðir geta orðið ófærar einkabílum.
Í svo stóru og mannmörgu hverfi eins Grafarvogi væri mikill akkur í því að búa til slíkt torg þar sem íbúar gætu notið "miðbæjarstemningar" í sínu eigin hverfi. Í kringum Spöngina eru íbúðir fyrir eldri borgara, framhaldsskóli, heilsugæslustöð, strætisvagnastöð og verslanir, þar sem margt fólk, ungir sem eldri, eiga leið um daglega og myndi slíkt torg því vera vel staðsett í Spönginni. Einnig væri hægt að skipuleggja lystigarð á auða svæðinu fyrir neðan strætisvagnamiðstöðina og tengja torginu.
ég er sammála þessu með ruslatunnur í Grafvarvoginum. Við göngum mikið meðfram sjónum og það eru ansi fáar tunnur á leiðinni meðfram Strandveginum og að golfvellinum Korpu. Og þetta á einnig við um fleiri gönguleiðir á svipuðum slóðum. Til að halda þrifnaði í lágmarki þarf að skoða þetta nánar
Lönguhlíð er breið gata og er oft mikil umferð á henni og þá sérstaklega þegar börn eru að fara í og úr skólanum. Það eru ekki allir sem "kunna" umferðareglurnar og veit ég um dæmi þar sem bílar keyra yfir á grænuljósi á gönguljósunum. Með því t.d. að þrengja götuna, gera hana einbreiða, setja hraðahindranir eða gönguvörð þá minnkar slysahættan.
styður
Lýsing á Klambratún
lýsing eflir leikur barna og líf á Klambratúni.
Lýsing fælir í burtu óvelkominn lýð.
Lýsing lýsir upp túnið og gerir það bjartara og ýtir undir notkun.
Íslenska