Netfang

Lykilorð


Gleymt lykilorð
  • Nýjustu rök
    Ari
    Þar er pláss fyrir brú og bein tenging niður í miðbæ. E.t.v. mætti líka liðka fyrir umferð enn frekar með því að gera útskot fyrir strætó þar sem hann stoppar. Það er enginn vandi sunnan Hringbrautar en þá þyrfti að færa stoppistöðina norðan megin niður fyrir Bjarkargötu.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    án þess að gera einfaldan hlut eins og að breyta gönguljósum. Svo ekki sé talað um göng eða göngubrú. Í eftirfarandi frétt voru þrír einstaklingar staddir á miðjum ljósunum að bíða eftir "seinni græna kallinum".
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Einföld hringtorg eru öruggustu og greiðfærustu gatnamótin þar sem umferð er lítil eða nokkuð mikil. Óhöppin eru bæði færri og ekki eins alvarleg og á ljósagatnamótum.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Ég hef búið í húsi á horni Blönduhlíðar og Lönguhlíðar hef ég séð það gerast að ökumenn virðast ekki eiga von á ljósum strax og þeir eru að koma sér út út hringtorginu og því hefur oft mátt litlu muna.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    350 krónur er stök ferð og hugsuð fyrir þá sem sjaldan nota ferðamátann. Ef þú notar strætó að staðaldri þá kaupir þú að sjálfsögðu ferðakort. T.d. með því að kaupa 9 mánaða strætókort greiðir þú c.a. 130 krónur á ferð m.v. að þú ferðist 5 daga vikunnnar, 2x á dag með strætó. Ef þú notar strætó meira, er þetta ennþá ódýrara. 130 krónur geta ómögulega talist hátt fargjald. Strætó á Íslandi er ótrúlega ódýr m.v. löndin í kringum okkur.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    350 krónur er stök ferð, ef þú notar strætó að staðaldri þá kaupir þú að sjálfsögðu ferðakort. Með því að kaupa 9 mánaða strætókort greiðir þú c.a. 130 krónur á ferð, ef þú ferðast 5 daga vikunnnar með strætó, 2x á dag. Ef þú notar strætó meira, er þetta ennþá ódýrara. Strætó á Íslandi er ótrúlega ódýr m.v. löndin í kringum okkur.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Ofantalið eru algengustu mótrökin. Skortur á bílastæðum. Stæðum hefur verið fjölgað um ca 30% í Flúðaseli fyrir nokkrum árum. Er það ekki nóg???
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Helstu rök þess að aftur verði bannað að leggja bílum í götunni er sú mikla hætta sem þetta skapar. Þegar lagt er í götunni er einungis ein akgrein fyrir bíla að mætast á. Ökumenn verða þá oft að aka á öfugum helmingi. Ökumenn eiga einnig erfitt að bjá börn að leik með bílana lagt útí götuna. Stórhætta hefur oft skapast á vetrum í snjóum þegar þessi eina akgrein teppist af bílum föstum í snjó. Hvað gerist þegar sjúkra og slökkvibílar komast ekki inn götuna þess vegna. Það getur kostað mannslí
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
    Ég er sammála þér, Birta. Þar sem farið kostar 350 krónur, ef greitt er með peningum, er bara allt of dýrt. Ég er sjálfur nemandi við Menntaskólann í Kópavogi og nota strætó á hverjum degi til að komast á milli heimilis og skóla. Ég er sem betur fer með nemakort, en ég kem ekki til með að nota það aftur, þar sem það hækkaði gríðarlega í verði s.l. haust. Auk þess var gildistími þess framlengdur úr 9 mánuðum í 1 ár, en var það nauðsynlegt? Nemendur nota strætó ekki svo mikið yfir árið.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Ég bý í Svíþjóð og þar er ókeypis í strætó fyrir þá sem eru með barnavagna, kerrur eða göngugrind, ein ástæðan er sú að ekki er öruggt með að fá pláss í strætónum því það er takmarkað. Væri fúllt að þurfa að borga í strætó og komast ekk með og kanski þurfa að bíða úti þar til að næsti kemur,
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Þetta er ekki spurning um krónur heldur öryggi barnanna. Það er hættulegt að þurfa að skilja barnavagn eftir til þess að fara frammí og greiða fargjaldið. Vagnstjórar keyra því miður of oft af stað áður en forráðamaður nær aftur til vagnsins til að tryggja öryggi barnsins bæði vegna hreyfinga vagnsins eða einhvers sem aðrir farþegar gætu tekið uppá.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Gönguljósin í Lönguhlíð við hringtorgið sunnan Miklubrautar eru stórhættuleg gangandi vegfarendum.Of stutt er frá afrein útúr hringtorgi að gönguljósunum sem hefur þær afleiðingar að ökumenn sem eru að beygja inní Lönguhlíð fara ansi oft yfir á rauðu ljósi, hef ég lennt of oft í þessu þegar ég sæki bróður minn í skólan, augljóst er hvernig hefði farið ef hann hefði verið einn. Hægt er að bæta þetta með því að færa ljósin innar í Lönguhlíð.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Krakkarnir ferðast í og úr skóla með strætó 5 daga vikunar og það er dýrt! að hvert far kosti 350 kr er mjög mikið. Það kosta 3500 kr að ferðast með strætó eina skólaviku! Krakkarnir eru í skóla alla daga vikunar í marga mánuði. Borgarstjórnin ætti bara að splæsa svona korti á alla krakka og unglinga jafnt í grunnskólum sem og Framhaldsskólum.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Sá möguleiki er fyrir hendi, sérstaklega í hálku, að gangandi vegfarendur með barnavagna og hjólreiðafólk missi stjórn á leið niður frá Sogavegi yfir brúna, og renni þar með niður grasbrekkuna að Miklubraut. Útsýni ökumanna þar væri ekki nægilegt til að afstýra slysum.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Stéttin er stórhættuleg er öll skökk þar sem gangandi vegfarendur eiga að fara eða fólk með barnavagn eða hjólandi. Sprungin steypa og skörðótt og erfitt um vik að ganga eða maður leggur sig í hættu við það. Tala nú ekki um þegar börnin manns sjö ára eru ein að gangi og gæta ekki vel að sér
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.