Netfang

Lykilorð


Gleymt lykilorð
  • Nýjustu rök
    GGV
    Upplýsingar um byggingarár hús eykur vitund fólk um söguna og byggingararfinn.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    GGV
    Að rækta grænmeti er bætandi fyrir sál og líkama.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Ekkert hlið er á vesturhlið Grasagarðsins og þó nokkur spölur að labba með lítil börn framhjá garðinum fyrir neðan Sunnuveg og Laugarásveg til að komast að tjörnunum og trjáreitunum í garðinum.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Annað myndband sem útskýrir þetta sem ég sagði á góðan hátt.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Sýnt hefur verið fram á að umferðaljós geta skapað umferðarteppu. Hringtorg hins vegar ýta undir að allar áttir fái jafnan aðgang að gatnamótum upp að vissum fjölda bíla á dag.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Stuðla að því að börn fari í Öskjuhlíðina með því að gera leiðina þangað öruggari.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Fjölgar bílastæðum fyrir ibúa og þá sem sækja KR leiki. Kemur í veg fyrir að bílar lokist inni þegar leikir standa yfir hjá KR. Hægt að bæta inn gróðursvæðum. Akstur um húsgötu getur skapað hættur þegar fáir bílar eru þar. Minni hætta á skemmdum á bílum sem lagt er.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Það er gaman að rölta um Laugardalinn bæði sumar og vetur og þetta er góður staður til að leyfa börnum og foreldrum að koma saman og leika sér á rólegu svæði þar sem engin bílaumferð er, í fallegu náttúrulegu umhverfi. Leikvellir í almenningsgörðum eru afar vinsælir erlendis. Jafnvel þó Fjölskyldu og húsdýragarðurinn bjóði upp á margt spennandi þá getur verið kostnaðarsamt að fara þangað oft yfir árið. Það vantar einfaldan ódýran kost, sem stuðlar samt að útivist á þessum fallega stað.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Eins og áður sagði felst hugmyndin í því að útvíkka notkun stoppistöðvanna með það að leiðarljósi að gera almenningssamgöngurnar að eðlilegri hluta af lífi borgarbúa og minnka vægi einkabílsins. Undirritaður telur að um einfalda og ódýra aðgerð sé að ræða sem muni auðvelda mjög almennari notkun almenningssamgangna sem einnig muni skila sér í sparnaði við viðhald gatnakerfisins ásamt sparnaði í útvíkkunum þess ef hugmyndin verður til þess að notkun einkabílsins dragist saman eða standi í stað.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Umferð austur Bústaðav fær grænt ljós áfram og líka til vinstri inn á Grensásv.. Fyrsti bíll í vesturátt treystir á flæðið þar sem rauða "hjólaljósið" sést illa (er ekki fyrir framan hann) og fer af stað þegar mótlæg umferð gerir það. Bifreið sem fer inná Grensásv. beygir því í veg fyrir þann sem fer vestur Bústaðaveginn. Þetta er stórhættulegt! Hvet ykkur til að setja aftur upp götuvitann eins og hann var.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Rök fyrir sundlaug eru augljós. Betri heilsa og vellýðan öllum til handa. Ungum sem öldruðum og allt þar á milli.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    kirkjuklukkurnar eru fallegar,
    Uppruni: http://wikipedia
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Eins og fyrirkomulagið er í Árbænum í dag eru hálftómir vagnar frá Strætó og Fylki að aka sömu leið.
    2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Í starfi mínu hef ég skoðað þetta mjög vel. Þetta kostar óheyrilegar fjárhæðir. Einnig geta skapast hættulegar aðstæður í frosti þar sem er snjóbræðsla, þannig að þetta er ekki trygging fyrir færri slysum.
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
    Af hverju ekki að fjárfesta í komandi kynnslóðum , að íslenkir grunnskóla nemendur , að hafi aðeins meiri kunnáttu enn ,nemendur frá öðrum löndum og líklegri að fá vinnu , í sammkeppni um atvinnu frá mörgum nemendum frá öðrum löndum .
    1 aðilum fannst þetta gagnlegt.