|
47
|
1
|
|
|||
|
|
|||||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Öryggi barna á leið til og frá skólaBörn úr Stekkjarhverfi þurfa að fara yfir Arnarbakka á leið sinni til Breiðholtsskóla en þar er umferð mikil og hröð, þrátt fyrir 30km hámarkshraða. Auk þess eru aðstæður við þá gangbraut sem þorri barnanna notar á leið til og frá skólanum ekki nógu góðar (gangbrautin næst Dvergabakka). Þar skyggja trjágróður og strætóskýli á útsýni bæði gangandi og akandi vegfarenda. Ég tel þetta mikilvægt mál, við þurfum að huga betur að öryggi barnanna okkar.
11 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. Margir sem hafa hag af þessuÞað eru 121 hús í Stekkjunum sem hafa hag af þessum ljósum (amk. 3-400 manns) fyrir utan alla sem búa í Bökkunum og þurfa að komast í Fálkaborg eða njóta Elliðaársdalsins.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
3. Umferðagata sem fara þarf yfir á leið í skólaÍ stekkjunum eru 400 íbúar og íbúum á grunnskólaaldri fer fjölgandi í hverfinu. Þó svo þarna séu gönguljós og 30 km hámarkshraði þá virða ökumenn það illa og börnin eru í hættu þess vegna. Þar að auki er útsýni barnanna þegar þau eru á leið heim aftur takmarkað vegna hleðslu sem skyggir á útsýni yfir bílaumferð.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
4. Bíll valt í Arnarbakka í haust vegna hraðaksturs!Best væri að hægja á umferðinni með því að setja hlykki á þennan vegkafla svo að hraðakstur sé ekki eins auðveldur, en er ekki viss um að það verði vinsælt meðal íbúa við þessar götur. Ljós myndu gera mikið fyrir öryggi barna, hvort sem þau búa í Stekkjum á leið í skóla eða vina og barna í Bökkum á leið til vina eða niður í dal.
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
5. 48% ók of hratt um ArnarbakkaGreinileg þörf á umferðaljósum.
Vefslóð sem fylgir hugmynd:
http://mbl.is/frettir/innlent/2012/05/09/48_prosent_ok_of_hratt_um_...
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rök á móti
Skrifaðu rök á móti
1. Eigum við ekki bara að loka götunni, það er í gildi hraðatakEigum við ekki bara að loka götunni? -- Það er nú þegar í gildi hraðatakmörkun á þessum legg Arnarbakka við 30 kmklst., og því þarf að herða hraðaeftirlitið þar, það væri réttari leið. Því ég álít að ef umferðarljós verði sett upp þar sem tillagan bendir á, geri ég ráð fyrir að hraðinn aukist í götunni. Það á að vera algjör óþarfi að setja umferðarljós þar sem 30 kmklst. hámarkshraði gildir. Hraðamælingar miklu oftar!!!!
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
Gönguljós á Arnarbakka eru nú á lista verkefna sem borgarbúar geta kosið um í rafrænum kosningum á vef borgarinnar 29.mars - 3.apríl. Ég hvet alla til að veita þessu verkefni atkvæði því þetta er tækifærið til að fá gönguljós yfir þessa hættulegu götu.
http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3871/6457_view-2451/