140
9
7-menntamal

Rök með (3 af 3)|Öll rök með Já

1. Talmeinafræðingar við grunnskóla / á hverfavísu

Bið barna eftir þjónustu talmeinafræðinga "úti í bæ"er iðulega löng og oft líða 2 vikur á milli meðferðartíma. Þó slík inngrip geti nægt börnum með smávægilega framburðargalla, þá eru þau ekki næg fyrir þann hóp sem glímir við meiri frávik. Ég vil sjá talmeinafræðinga við grunnskóla Reykjavíkur, í nærumhverfi barnanna sem þeir þjóna og í daglegu samneyti við aðra fagaðila þar sem vinna að menntun og hagsmunum þessara barna. Slíkt hlýtur að þjóna hagsmunum barna, fjölskyldna og fagfólks.

4 aðilum fannst þetta gagnlegt.

2. Samvinna kennara og talmeinafræðinga

Ef talmeinafræðingar væri við grunnskólana þá gætu þeir leiðbeint kennurum til að fá markvissari þjálfun í allt skólastarfið. Talmein lagast ekki á einni nóttu. Það þarf markvissa þjálfun sem myndi nýtast mun betur ef kennarar væru meira meðvitaðir. Þess vegna styð ég þessa hugmynd.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

3. Talmeinafræðinga í skóla og þjónustumiðstöðvar.

Ég er sammála mikilvægi þess að talmeinafræðingar vinni í nærumhverfi barnsins. Teymisvinna þeirra sem vinna með börnunum og samvinna við foreldra mun skila góðum árangri. Því miður verður verður líklega biðlisti í leik og grunnskólum eftir þjónustu talmeinafræðinga þangað til að nægilega margir hafa verið ráðnir. Launakjör hafa mikil áhrif á stöðuna. Reykjavíkurborg býður talmeinafræðingum 311 þús. kr. í laun á mánuði.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rök á móti Skrifaðu rök á móti
Rök á móti (no points)|Öll rök með Nei