Í vinnslu
  • 30.03.2012

    Þessi hugmynd á Betri Reykjavík er farin í ferli hjá umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar.

3-samgongur

Ham setti inn upplýsingar u.þ.b. 1 mánuður síðan 1 Athugasemd
Ham - u.þ.b. 1 mánuður síðan

Lækjargata og Skólabrú = ekki lífvænleg.

Þórdís Gísladóttir setti inn upplýsingar 4 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Þórdís Gísladóttir - 4 mánuðir síðan

Það ætti að hafa eina akbraut í hvora átt á Snorrabraut og breyta henni, t.d. með Lönguhlíð sem fyrirmynd og planta trjám á eyju á milli akreina.

Margrét setti inn upplýsingar 4 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Margrét - 4 mánuðir síðan

Snorrabraut er hættuleg hraðbraut í borginni. Það deyja ekki margir gangandi vegfarendur í umferðinni í Reykjavík en á Snorrabrautinni hafa amk. 2 látist. Öryggi þarf að bæta strax! Mörg börn þurfa að fara yfir hana á leið til skóla á hverjum degi. Gönguljósin þar loga of stutt fyrir fullorðna manneskju að komast yfir hvað þá barn. Hún slítur í sundur hverfi þar sem margir búa sem kjósa að fara gangandi ferða sinna. Það þarf að gera hana að 2 akreina götu, minnka hámarkshraða, fjölga hraðahindrunum og setja jafnvel göngubrýr yfir hana á amk. 3 stöðum. Það þarf að hefja aðgerðir strax!

Lilja Sigrún Jónsdóttir setti inn upplýsingar 6 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Lilja Sigrún Jónsdóttir - 6 mánuðir síðan

Það var gerð tilraun fyrir nokkrum árum með að þrengja Skeiðarvog í eina akrein í hvora átt tímabundið. Þegar tímabundin þrenging sýndi sig að geta gengið var gatan þrengd varanlega. Við höfum mjög góða reynslu af þessu við Skeiðarvoginn og ég get vel séð fyrir mér að sama gæti átt við um Snorrabrautina. Breytt götumynd sem þrenging býður upp á skapar mannvænlegra umhverfi og gatan fær ekki að kljúfa hverfið áfram eins og áður.

Guðlaugur Kr. Jörundsson setti inn upplýsingar 7 mánuðir síðan 1 Athugasemd
Guðlaugur Kr. Jörundsson - 7 mánuðir síðan
Ég og starfsfélagar vorum að fara yfir Snorrabrautina í dag, við Austurbæ. Jeppa var keyrt á fleygiferð yfir gangbrautin á móti rauðu ljósi og næstum yfir okkur. Hún var eflaust að drífa sig í mat á Laugaveginum, enda náði hún græna beygjuljósinu.