|
Í vinnslu
|
|
|||
|
|
||||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Strætókort í sjoppurNú er aðeins hægt að kaupa miða og kort í sundlaugum og einhverjum fáum útvöldum stöðum. Ef maður er miðalaus og ekki með 350 kall í klinki í vasanum er ekki hægt að hlaupa í strætó. Með því að selja þetta í sjoppum nálægt helstu stoppistöðvum yrði mun auðveldara að hlaupa í strætó fyrir þá sem ekki eru reglulegir notendur.
9 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
2. Iðan sem sölustaðurÉg myndi vilja sjá að Iðan sem er á besta stað í miðbænum, selji allar gerðir miða og korta, í stað dagpassa fyrir túrista einungis eins og mér skilst að þeir geri núna.
3 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rök á móti
Skrifaðu rök á móti
1. Fleiri greiðslumöguleika í strætóEða borga í strætó með farsímum? Þannig er t.d. hægt að kaupa miða í bíó.. maður fær strikamerki sem er skannað. Hví er það ekki hægt í strætó?
9 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. rökin mínMér finnst verið að selja stræró miða á alltof fáum stöðum , það er verið að koma svo í veg fyrir það að fólk geti sparað sér pening með strætómiðum !
1 aðilum fannst þetta gagnlegt.
3. Því fleiri sölustaðir því meiri kostnaðurReyna á að draga sem mest úr sölu- og markaðskostnaði við strætókort. Þess vegna er það bráðsniðugt og nægjanlegt að selja þau í sundlaugum sem eru frekar útbreiddar á höfuðborgarsvæðinu þar sem þar eru til staðar starfsmenn sem eru þegar á launum hjá sveitarfélögum. Ætti að vera frekar auðvelt fyrir þá sem nota strætó að skipuleggja sig þannig að þeir eigi alltaf strætókort enda mun ódýrara en að kaupa eina ferð. Ef strætó á að vera ódýr ferðamáti þá þarf kostnaður við reksturinn að vera lágur.
2 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Miðarnir þurfa að vera aðgengilegri. Kortin eru auðveld í pöntun á netinu en það verður að segjast að miðarnir eru mjög óaðgengilegir.
Ég vil sjá strætómiða til sölu í háskólum borgarinnar. Háskólarnir eru með mikla umferð fólks bæði í mötuneytum og bóksölum. Sýnilegir strætómiðar á þetta stórum stöðum gera valmöguleikann um strætó aðgengilegri fyrir þá einstaklinga sem óvanir eru strætó og auðveldar til muna þeim að lækka fargjaldið sem nýta sér farkostinn að einhverju leyti, en ekki nóg til að kaupa kort.
Það getur ekki verið það dýrt að selja miða (þó ekki nema bara í HR og HÍ) og ég er alveg viss um að það mundi borga sig.