106
4
8-fristundir

Rök með (2 af 2)|Öll rök með Já

1. Góð hugmynd sem þarfnast útvíkkunar

Þetta er í grunninn góð hugmynd en ætti að gilda um miklu fleiri staði en sundlaugar. Það er ekkert rökrétt við það að úrsvari okkar sé varið að stórum hluta í "ókeypis" bílastæði. Það er miklu rökréttara að þeir sem nota bílastæðin greiði fyrir þann kostnað sem af þeim hlýst með stöðugjöldum. Þar af leiðandi ætti að greiða fyrir bílastæði við allar byggingar á vegum borgarinnar, íþróttahús, ráðhús og önnur mannvirki. Þá væri hugsanlegt að borgarsjóður þyldi að gjöld í sundlaugar væru lægri.

3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.

2. Af hverju eiga bíllausir að niðurgreiða sundgjald fyrir hina

Í stað þess að hækka iðgjald sundiðkenda er miklu nær að rukka þá sem mæta á bíl fyrir þann kostnað sem hlýst af því að kokma á bíl.

6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 4 fannst það ekki.
Rök á móti Skrifaðu rök á móti
Rök á móti (1 af 1)|Öll rök með Nei

1. bifreiðasjóður er ekki það sama og íþrótta- og tómstundasvið

Reykjavíkurborg er rekin af mörgum sviðum. Ef bifreiðaeigendur eiga að fara að greiða bifreiðasjóði fyrir geymslu á bifreiðum sínum við sundstaði borgarinnar þá eru þeir ekki að styðja við rekstur sundstaða.

3 aðilum fannst þetta gagnlegt, 2 fannst það ekki.