82
5
6-umhverfismal

Rök með (4 af 4)|Öll rök með Já

1. Greni og önnur barrtré við stórar umferðaræðar

Með því að planta grenitrjám eða/og öðrum barrtrjám, í þónokkru magni, nálægt helstu umferðaræðunum, myndi rykmengun stórminnka. Rykið leggst á nálar trjánna, og helst þar eða rignir svo niður í jarðveginn. Einnig getur trjágróður minnkað hljóðmengun þónokkuð, sérstaklega ef fara saman hljóðmanir og fremur hávaxinn og þéttur gróður.

7 aðilum fannst þetta gagnlegt.

2. Barrtrén

Barrtré, td sitkagreni þrífast prýðilega í Reykjavík, og í raun flest öll barrtré sem á annað borð eru nógu harðgerð miðað við veðurfarið í borginni. Að sjálfsögðu þarf að ráðast að rótum vandans einnig, enda er það gert nú þegar. Naglalausum dekkjum fjölgar ár frá ári, og umhverfisvænni orkugjafar í bílaflotanum er sífellt að verða algengari. Barrtrén hjálpa til að hreinsa loftið, ásamt fækkun nagladekkja og meiri notkun á vistvænum orkugjöfum.

2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

3. Sígræn tré eru öflugir rykfangarar, vetur jafnt sem sumar.

Sígræn tré gegn svifryki (Jón Geir Pétursson, Mbl. jan. 2007): "Jón Geir segir að aðstæður til trjáræktar við umferðaræðar á höfuðborgarsvæðinu séu yfirleitt mjög góðar og því ætti að vera auðvelt að koma upp neti af öflugum trjágróðri sem gæti síað svifrykið við umferðaræðarnar. Hann bendir á að rykið þyrlist líka síður upp séu tré nálægt þessum æðum. Auk þess skapi trén skjól, hafi áhrif á hljóðmengun og séu ennfremur yfirleitt til prýði."

Vefslóð sem fylgir hugmynd: http://mbl.is/greinasafn/grein/1122700/
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.

4. Barrtré valda ekki súrnun jarðvegs

Vetur í Reykjavík eru hæfilega kaldir fyrir fjölmargar tegundir sígrænna barrviða. Veðurfarið í Reykjavík er reyndar eins og sniðið fyrir sitkagreni sem þolir öðrum trjátegundum betur saltrok og umhleypingasama, milda vetur. Sigrænn gróður fangar svifryksagnir betur en sumargrænn gróður, auk þess sígræn tré „eru græn“, veita skjól, deyfa umferðarhávaða og bæta fuglalíf - allt árið. Gagnstætt því sem ýmsir hafa haldið fram, valda barrtré ekki súrnun jarðvegs. Þau fanga einungis þá ákomu sem beras

Vefslóð sem fylgir hugmynd: http://www.skogvatn.is
2 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rök á móti Skrifaðu rök á móti
Rök á móti (1 af 1)|Öll rök með Nei

1. Barrtré henta ekki

Vetur eru ekki nógu kaldir í Reykjavík fyrir barrtré auk þess gera þau jarðveginn súrann. Er ekki einhver af ástæðum svifryks- og hljóðmengunar sem hægt er að draga úr? Mér finnst almennt best að draga úr ástæðunum.

6 aðilum fannst þetta gagnlegt, 4 fannst það ekki.