|
Í vinnslu
|
|
|||
|
|
||||
|
Rök með
Skrifaðu rök með
1. Allar upplýsingar eru fyrir hendiÞað eru GPS tæki og fjarskiptabúnaður í öllum strætisvögnum núna. Það er búið að smíða demó forrit sem sýnir staðsetningu allra vagnanna á korti, uppfært á nokkurra sekúndna fresti. Það þyrfti mjög lítið til að gera þetta aðgengilegt almenningi, eina sem þarf er ákvörðun um það frá stjórnendum strætó.
13 aðilum fannst þetta gagnlegt.
2. Hefur virkað annarsstaðarSýnt hefur verið fram á hagræði þess að gera upplýsingar um almenningssamgöngur(Strætó t.d.) aðgengilegar opinberlega. Það getur aðstoðað mjög við nýsköpun á lausnum sem snúa að upplýsingagjöf til viðskiptavina. Þar sem þetta er gert, þarf fyrirtækið sem sér um samgöngurnar jafnvel ekki að þróa hugbúnað til að birta staðsetningu og tíma fyrir ökutæki. Áhugasamir taka það því í sýnar hendur, að búa til forrit til að auðvelda öðrum viðskitpavinum að sjá ferðir Strætó. http://bit.ly/iBiCeG
Vefslóð sem fylgir hugmynd:
http://bit.ly/iBiCeG
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.
3. Fyrir þá sem eru ekki reglulegir notendur leiðaMikilvægt væri að geta séð tímaáætlun sem sýnir líka hvenær leiðir koma á öðrum stöðum en þar sem maður er staddur. Ef ég er ekki notandi leiðarinnar almennt - verð ég að geta séð auðveldlega hvaða vagn ég ætti að taka til að koma tímanlega ... ekki allt of snemma og ekki of seint - og þannig nýtast ferðir og tími betur!
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
4. Virkar vel annarstaðarBorgarstjórn Edinborgar opnaði þetta og til varð frítt open source app fyrir Android. Sjá link.
Vefslóð sem fylgir hugmynd:
https://market.android.com/details?id=uk.org.rivernile.edinburghbus...
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
5. Búa til API (Application Programming Interface)Þetta er frábær hugmynd, ég hef einmitt nýlega haft þessa hugmynd og var að velta fyrir mér að hafa samband við strætó um að framkvæma þetta. Ég gæti meirasegja boðið mig fram til að forrita svona API sem forritarar gætu svo notað og búið til eitthver frábær apps eða eitthvað álíka.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Gefur möguleika á óvæntum notkunarmöguleikumMér finnst að það ætti að stofna opinn hóp áhugasamra borgara sem fengi allar upplýsingar um hvaða upplýsingar séu fáanlegar. T.d. hversu oft hver strætó sendi staðsetningar upplýsingar? Síðan finnst mér að hver sem er ætti að hafa aðgang að "hráum" upplýsingunum. Það gefur möguleika á að t.d. krakkar geti búið til sniðug og skemmtileg forrit sem nota upplýsingarnar með óvæntum hætti.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||
@Gunni: Nei, þetta er ekki "aðgengilegt".
1) API-inn er hvergi skjalaður af strætó. Það að hann sé "opinn út á vefinn" þ.e. ekki lokað fyrir aðgang, þýðir ekki að hver sem er megi nota hann. Þetta þarf að vera skjalfest og staðfest af Strætó bs. til að geta talist opinn og aðgengilegur API.
2) Eins og þú bendir á í bögg listanum þínum vantar haug af upplýsingum í þessi gögn. T.d. einkvæm númer á vagna, staðsetningu biðskýla og leiðakerfið.
Þetta er langt frá því að vera eins og það ætti að vera. En eins og Einar bendir á koma vonandi fréttir af málinu í vikulokin. Ég hlakka til að heyra hvað verður opnað "almennilega" þá.