Í vinnslu
  • 29.02.2012

    Þessi hugmynd á Betri Reykjavík er farin í ferli hjá umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkurborgar.

3-samgongur

Rök með (5 af 6)|Öll rök með Já

1. Allar upplýsingar eru fyrir hendi

Það eru GPS tæki og fjarskiptabúnaður í öllum strætisvögnum núna. Það er búið að smíða demó forrit sem sýnir staðsetningu allra vagnanna á korti, uppfært á nokkurra sekúndna fresti. Það þyrfti mjög lítið til að gera þetta aðgengilegt almenningi, eina sem þarf er ákvörðun um það frá stjórnendum strætó.

13 aðilum fannst þetta gagnlegt.

2. Hefur virkað annarsstaðar

Sýnt hefur verið fram á hagræði þess að gera upplýsingar um almenningssamgöngur(Strætó t.d.) aðgengilegar opinberlega. Það getur aðstoðað mjög við nýsköpun á lausnum sem snúa að upplýsingagjöf til viðskiptavina. Þar sem þetta er gert, þarf fyrirtækið sem sér um samgöngurnar jafnvel ekki að þróa hugbúnað til að birta staðsetningu og tíma fyrir ökutæki. Áhugasamir taka það því í sýnar hendur, að búa til forrit til að auðvelda öðrum viðskitpavinum að sjá ferðir Strætó. http://bit.ly/iBiCeG

Vefslóð sem fylgir hugmynd: http://bit.ly/iBiCeG
10 aðilum fannst þetta gagnlegt, 1 fannst það ekki.

3. Fyrir þá sem eru ekki reglulegir notendur leiða

Mikilvægt væri að geta séð tímaáætlun sem sýnir líka hvenær leiðir koma á öðrum stöðum en þar sem maður er staddur. Ef ég er ekki notandi leiðarinnar almennt - verð ég að geta séð auðveldlega hvaða vagn ég ætti að taka til að koma tímanlega ... ekki allt of snemma og ekki of seint - og þannig nýtast ferðir og tími betur!

5 aðilum fannst þetta gagnlegt.

4. Virkar vel annarstaðar

Borgarstjórn Edinborgar opnaði þetta og til varð frítt open source app fyrir Android. Sjá link.

5 aðilum fannst þetta gagnlegt.

5. Búa til API (Application Programming Interface)

Þetta er frábær hugmynd, ég hef einmitt nýlega haft þessa hugmynd og var að velta fyrir mér að hafa samband við strætó um að framkvæma þetta. Ég gæti meirasegja boðið mig fram til að forrita svona API sem forritarar gætu svo notað og búið til eitthver frábær apps eða eitthvað álíka.

5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Nýjustu rök með (1 af 1)|Öll rök með Já

Gefur möguleika á óvæntum notkunarmöguleikum

Mér finnst að það ætti að stofna opinn hóp áhugasamra borgara sem fengi allar upplýsingar um hvaða upplýsingar séu fáanlegar. T.d. hversu oft hver strætó sendi staðsetningar upplýsingar? Síðan finnst mér að hver sem er ætti að hafa aðgang að "hráum" upplýsingunum. Það gefur möguleika á að t.d. krakkar geti búið til sniðug og skemmtileg forrit sem nota upplýsingarnar með óvæntum hætti.

5 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Rök á móti Skrifaðu rök á móti
Rök á móti (no points)|Öll rök með Nei