styður
Mengunarmælingar á Laugaveg
Fjöldi fólks gengur um Laugaveg dag hvern, ferðamenn, fólk í verslunarferð og fólk sem bara langaði að líta þangað. Þar vinnur fjöldi fólks. Á kyrrum dögum má sjá og finna útblástur af þungri umferð. Er hætta þarna á ferðum fyrir allan þann fjölda sem fer þarna um og ekki síður það fólk sem þar vinnur, og hefur ekki val um hvort það er í slæmu andrúmslofti eða ekki?
Horse rental and horse-drawn carriage rental at Fríkirkjuvegur 11, all year round. Fríkirkjuvegur 11 stands next to Tjörnin and a green belt extends from there through Hljómskálagarður to Öskjuhlíð, Fossvogur, Víðidalur and beyond. You can ride from downtown Reykjavík to Heiðmörk or ride from Víðidalur through the city and finish downtown. Fríkirkjuvegur 11 is a family villa built a century ago and has an outdoor enclosure for horses in the back garden since that time.
Hestaleiga og hestvagnaleiga árið um kring, gerð út frá hestagerðinu við Fríkirkjuveg 11. Þar byggði Thor Jensen myndarlegt hús á fyrsta áratug liðinnar aldar. Til að auðvelda aðföng gerði hann náttúrulega ráð fyrir aðdráttum á hestum og hestvögnum, og því er ónotað hestagerði bak við húsið. Ónotað, jæja, stundum eru krakkar í fótbolta þar. Frá þessum stað er grænt belti meðfram Öskjuhlíð og inn með Fossvogi, sem liggur upp í Víðidal og Heiðmörk.
Háaleitisbrautin er dálítið óbein, ekki satt?
Víða um borg eru lóðir með hátimbruðum hugmyndum um hús, sem ekki urðu til. Borgin og verktakar bera sameiginlega ábyrgð á þessu og borgin (skipulagsyfirvöld) þurfa að hafa heimildir til að grípa inn í og vinna með lóðir, þar sem augljóst er að nokkur ár líði áður en byggt verður. Þar þarf að girða lóðina við lóðarmörk, ekki út á miðjar götur eins og milli Einholts og Þverholts. Einnig þarf að tyrfa lóðirnar svo nefnt sé ódýrt úrræði til að gera lóðina þekkilegri.
Í skipulagi frá 1962 var áherslan á greiða leið akandi um borgina. Eftir sitja breiðar tengibrautir í íbúðarhverfum, Hofsvallagata, Skeiðarvogur, Háaleitisbraut og Réttarholtsvegur, svo dæmi séu nefnd. Þessar götur skera sundur hverfin. Til að koma í veg fyrir hraðakstur hafa verið settar hindranir. Þetta eru aðalleiðir strætisvagna um hverfin og mikilvægt að gera þær þægilegri fyrir farþega, taka burtu þúfurnar og takmarka umferð með öðrum leiðum. Strætisvagnarnir halda ekki uppi hraðakstri.
Íslenska