Það að færa kostnaðinn yfir á atvinnurekendur er núþegar mögulegt. Í sífellt meiri mæli eru atvinnurekendur að taka upp samgöngustyrki, en þessar 7000 krónur á mánuði sem má úthluta skattfrjálst í slíkan styrk duga vel fyrir ársnotkun í strætó. (sjá hlekk)
Þessi tillaga er því bæði óþörf og ógagnleg, enda væri rekstrarumhverfi strætó gert ótryggara en nú er sem myndi koma niður á notendum þjónustunnar. Hugsa að öllum sé ljóst að við megum ekki við því.
Það er kannski þörf á að hægja á umferðinni þarna um, en að loka götunni býr bara til vandræði annars staðar, það er vond lausn. Þessir bílar hverfa ekkert - einhverja leið þarf að veita þeim.
styður
Káratorg til frambúðar
Í sumar stóðu Torg í Biðstöðu annað árið í röð fyrir sínum frábæru torgum. Káratorg á horni Kárastígs og Frakkastígs lifnaði svo mjög við að við íbúarnir hérna við torgið erum svo að segja í sjokki nú þegar það er farið. Sjá: http://borghildur.info/karatorg-2012/
Vil ég leggja til að Káratorg verði gert að alvöru torgi. Mannlíf, kattalíf og kaffi.
Í dag gegnir Frakkastígurinn hlutverki hraðbrautar þeirra sem vilja keyra stystu leið yfir holtið. Gatan er þjökuð af þéttri og oft hraðri umferð. Hún er samt bæði mikið notuð af gangandi og hjólandi vegfarendum, eitt besta kaffihús bæjarins er þar staðsett og lengsta samfellda röð bárujárnsklæddra timburhúsa á sér þar stað. Það fer ekki vel saman. Legg til að götunni verði lokað við Iðnskólann, bílastæðum fækkað og 15 km/klst hraðatakmörk sett. Einnig að umferð á Bergþórugötu verði takmörkuð.
Sem hjólreiðamaður þá hef ég ósjaldan þurft að taka strætó með hjólið mitt, til dæmis sökum þess að veðrið er orðið viðbjóðslegt þegar haldið er heim á leið úr vinnu. Mitt hjól er götuhjól, á stórum dekkjum, og það blokkerar nánast allan ganginn í vagninum. Ef það eru tvö hjól inni, þá blokkerast gangurinn algjörlega, og ég þarf að fara út á hverri stoppustöð til að hleypa framhjá. Reiðhjól eiga ekki heima inni í vagninum, en það er nóg pláss framan á honum.
Það kemur vissulega fyrir að hjólreiðafólk tekur strætó en það er bæði óþægilegt að fara með hjól inn í strætó og enn fremur er hjólið yfirleitt mikið fyrir. Rýmið inní strætó er betur nýtt undir barnavagna. Með einföldum breytingum má hinsvegar setja hjólagrindur utan á strætisvagna. Ég sé t.d. fyrir mér að það myndi nægja að setja slíkar grindur á stofnleiðir og sleppa hverfisleiðum (enda geta hjólreiðamenn vel ferðast innan hverfis fyrir eigin afli..).
Íslenska