spurning um að breyta öllu svæðinu og götunni í bílastæði og hafa einstefnu inn fyrir miðju svæðis og út milli húsanna eða gegnum sorpu og færa sorpu norðar. en þá færi gatnagerðin og sorpu umferð í gegnum stæðið. ég var búinn að setja þetta inn hélt ég áður , er hreynsað til hérna
og svona hús yrði neðan núverandi grunnborðs vatns , vatnsþétt hús er dýrara og vill fljóta upp. og hætt við flóðum sbr bílakjallara við granda nýlega. niðurgafinn. þungt hús ofaná gæti haldið risakeri niðri, þá á súlum og tjörnin á gólfi jarðhæðar, og önnur tjörn á þakinu jafnstór þakinu. eða mætti sökkva hverjum bíl í sér keri, eða láta þá sigla þannig á tjörninni í djúpsigldum báti sem líkist öndum. þéttur stífluveggur við höfnina og vatnsmýri og rör á milli, hæpið. stallað hús eða dulbúið
yrði það svo rukkað í næsta útsvari, svo væri hægt að vara fólk við milli dagskrárliða í sjónvarpi kvöldið áður ef spá sýnir svona, og vinnustaðir og skólar látnir segja fólki daginn áður að vera heima næsta morgunn, og hvenær má leggja af stað, og netfyrirtæki sendi í tölvur fólks, facebook statusum dreyft , maður gæti verið vinur síðu sem sendir manni boð. stofna þannig síðu. póstburðarfólk blaðburðarfólk er snemma á ferli, gæti sett límt miða á útihurðir eða bíla, nei festist ekki í sn´jónum
skilti gæti líka haft númer hjá landsbjörgu til að tilkynna ferð út á ís, þeir gætu svo haft vefmyndavél við vatnið, td fyrir innan glugga í húsi við vatnið. ef það er ráðlagt að vera með búnað, flotholt , blautbúining , ísöxi eða naglaspítu til að ná taki á ísbrún og toga sig upp, skrifa það á skiltið. gæti verið tölvuskjár í kassa með nýjustu upplýsingum um mismunandi ísþykkt og örugg svæði á vatninu útreiknað eftir hitastigi síðustu daga. eða bara skilti. þau er líka hægt að uppfæra daglega
td af varnarefnum í viðarvörn, td króm í því. veit ekki hvaða efni eru verst, man eftir að pcb var notað til að þétta húsgrunna í usa. veit ekki með zink af þakjárni og hvort blý leysist úr járni td við ryðgun. blý í málningu hefur verið mikið mál í usa og í jarðvegi við hús minnir mig. en jarðvegur er kannski oftast í lagi samt. fín hugmynd samt, oft er hent rúðum við endurnýjun á gleri , mætti nota það í gróðurhús, eða er það of þungt og betra að nota þunnt plast fellt niður í veðrum.
framan við kirkjudyrnar að styttunnni er flatt torg , hugurinn reiknar því með flatneskju á öllu svæðinu. þarna er myrkvað þanng að lækkun stígsins eða stíganna bakvið og meðfram styttunni sést illa. kanturinn er nokkuð hár , kannski meter þar sem hæstur. ég horfði á styttuna meðan hjólið rann rólega áfram , ekki viturlegt það. og rúllaði framaf óviðbúinn , vöðví í kálfa er illa farinn af tognun. hefði getað farið mun ver. þarna er ekki handrið því þetta er rúnnaður skrautkantur með styttunni
í dag á eftri breiðholtbraut að shell komu salt og sköfu bílar nokkrum sinnum en dugði ekki í nokkra klukkutíma , svo fór saltið að virka kannski, amk hættu þeir að festast, löggan kom stutt, 3 björngunarsveitarmenn komu seint og fóru snemma, ég stóð lengi einn amk einn fótgangandi vaktina við að ýta og skipuleggja og ráðleggja aðferðir við að koma bílum af stað sem tókst oftast, eða hjálpa þeim að bakka niður og inn í seljahverfi , ég með illa tognaðan fót sem ég ætlaði að hlífa,
Öskjuhlíðin leysir öll þín vandamál sýnist mér.
það getur kostað akstur þvert yfir borgina til að komast í íbúð, með tilheyrandi sóun á bensíni og tíma, kannski oft í viku árum saman, og töluverður fjöldi manns, ætti borgin kannski að bjóða upp á og sérhanna áningarstaði fyrir elskendur , bílastæði afsíðis , girt fyrir gangandi umferð og sérmerkt og gróður til að hylja sýn. og með hliði kannski, núna er þetta ólöglegt og gangandi og akandi geta komið að. þarf ekki að hlúa betur að þessum mikilvægu atburðum þar sem nýir borgarbúar skapast
vírnetgirðing kringum tjarnir gæti virkað en ekki fögur. net í vatnið hálfan meter undir yfirborð , járn myndi ryðga, plast trollnet myndi sólskemmast kannski. og fætur festast í því kannski. eftirlitsmyndavélar gæti virkað, og setja upp síðu sem sýnir úr mörgum vélum fyrir almenning að vakta, eða stjórnstöð. hreyfiskynjarar , eru á heitm pottum held e´g vegna næturheimsókna. byggingagyrðing ef margar ónotaðar til í landinu, í dag er ís á hálfri tjörn og dýpt 1.30 m, 10-15 m breið kannski.
Ég vil fá myndavélar framaná vagninn og til hliðar farþegamegin. Svo vil ég fá myndavél sem skoðar götumyndina einsog google Streetview. Við erum þegar með staðsetningatæki í bílnum. Að tengja þetta tvennt saman, má út andlit, og birta opinberlegaundir opnu leyfi. Þá getur hver sem er sem lendir í slysi haft aðgang að upptökunum, auk þess væri hægt að nýta myndefnið við vísindarannsóknir, t.d. arkitektar sem myndu vilja skrifa um umbreytingar á götumyndum í framtíðinni.
sjá bland.is: keyrði stætó á mig við gatnamót bugðsíðu og vestursíðu
ég er á biðskyldu og strætó kemur ætlar að beygja til vinstri og hann kemst ekki svo ég bakka
frá .hann tekur beygjuna og keyrir í mig og hann fér út og tekur uppl og segir við mig hann
þurfi að halda áfram að keyra út og ég eins og auli sér ekkert við þvi og svo núna vill hann
helda fram að ég hafði ekki sint biðsyldu og keyrt á hann þannig það hans orð gen mín
Ég er sammála því að borgin ætti ekki að planta hættulegum jurtum, en ef þær eru í einkagörðum er ekkert hægt að segja. Ef borgin vill taka upp sínar plöntur - mætti kannski bjóða fólki sem vill að koma og fá þær, í stað þess að nota þær í moltu. Auk þess þarf að kenna börnum að bera viðingu fyrir öllu líf - þar með töldum jurtum og trjám. Alltof algengt að sjá krakka og unglinga skemmta sér við að skemma gróður.
börn td hafa brunnið mikið við að leika sér við eða með plöntuna. ég hef séð það sem ég held vera tröllahvönn við torfufell, nálægt garðabæjarkirkju, laugarnesvegi. þetta mætti vera sjálfboðastarf til að minnka kostnað.
sumstaðar liggja vélhjóla og vinnuvéla eða jeppa slóðar af útivistarsvæðum og að næsta hverfi og sú leið liggur um eignarlóðir td byggingasvæði grjótnámur og atvinnustarfsemi ýmiskonar ógirtar og hliðlausar og engin skilti með lokað eða einka og erfitt að átta sig á því að þetta sé nokkuð bannsvæði, stundum engin hús á svæðunum td, stundum hálfbyggð hús úr hruninu sem virðast yfirgefin. á og við svona svæði liggja grimmir menn í leynum í bílum eða húsum eða á vappi eins og bíða eftir fórnarlambi
Íslenska