Gangbraut við enda á Teigagerði og Breiðagerði

Gangbraut við enda á Teigagerði og Breiðagerði

Umferðahraði- og þungi um Breiðagerði er mjög mikill. Mikið af börnum eru að leik eða á ferðinni við þessa götu. Reynt hefur verið að hægja á umferð um Breiðagerði, sem er 30 gata, með því að setja upp þrengingar. Þessar þrengingar eru hins vegar ekki gangbrautir. Börn nota þessar þrengingar þó oft til fara yfir götuna, oft án þess að átta sig á að þetta er ekki gangbraut. Ég vil leggja til að sett verði gangbraut í þrenginguna sem er við endann á Teigagerði og Breiðagerði.

Points

Öryggi barna og gangandi vegfarenda á að vera í forgangi. Þó svo að öryggi ætti ekki að vera kosningamál, heldur ætti Reykjavíkurborg að sjá síma sinn í að hafa þessi mál í lagi án þess að íbúar þurfi að kjósa um það

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information