Ný tenging við göngustíg frá Háaleitisbraut 52-56

Ný tenging við göngustíg frá Háaleitisbraut 52-56

Hættulegar tröppur eru við endann á bílaplaninu við Háaleitisbraut 52-56 og gangandi vegfarendur eru í hættu í myrkri þegar þeir eru að ganga á bílaplaninu til að komast inn á göngustíginn sem skilur að Háaleitisbraut og Safamýri. Þessi tenging er sú eina af þessu taginu við þennan göngustíg og öruggast væri að fjarlægja þessar gömlu tröppur og tengja gönguleiðina frekar yfir túnið og rjúfa skarð í vegginn meðfram stígnum á réttum stað.

Points

Eykur öryggi gangandi vegfarenda til muna ef tröppurnar verða fjarlægðar af bílaplaninu, þannig að fólk þurfi ekki að ganga þarna í myrkri á bílaplaninu og tröppurnar tengdar beint inn á stíginn gegnum garðinn.

Þessar tröppur henta auðvitað ekki þeim sem eru hjólandi eða með barnavagna og eru vitaskuld hindrun fyrir þá sem eru í hjólastól eða sambærilegum farartækjum. Það mælir allt með þessari framkvæmd.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information