Útiaðstaða fyrir alla fjölskylduna í Laugardalinn.
Það vantar að setja upp aðstöðu í Laugardalnum þar sem hægt er að fara í lautarferðir, leika sér og grilla. Græn svæði hafa góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu en það vantar betri aðstöðu sem dregur fólk í dalinn. Þarna þyrfti að vera útigrill-aðstaða (sjá t.d. Kjarnaskógur á Akureyri), bekkir og borð, skemmtileg leiktæki fyrir allan aldur - og helst ekki hefðbundnar rólur... heldur spennandi hlutir sem reyna á líkamann, örva ímyndunaraflið og vekja gleði (tarsan-þrautabraut, tilraunaleiktæki o.s.frv).
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation