Setja upp 18 körfu frisbígolfvöll í Elliðaárdal og auka þannig fjölbreyttni dalsins auk þess að bjóða borgarbúum upp á stórskemmtilega ókeypis afþreyingu. Frisbígolf er einfaldur leikur þar sem frisbídiskum er kastað í sérhannaðar körfur og er markmiðið að far í sem fæstum köstum. Þessi leikur hentar öllum aldri og er mjög fjölskylduvæn afþreying. Mjög góð reynsla er t.d. af vellinum á Klambratúni en hann var settur upp fyrir rúmum tveimur árum og hefur alveg slegið í gegn.
Ég tel að almenningur ætti að styðja við nýjar hugmyndir sem auka fjölbreytni í afþreyingu og hvetur fólk til hreyfingu og útivistar. Mjög ódýrt er að setja upp völl, hann fellur vel að umhverfinu og þarf lítið viðhald auk þess að færa líf á þessu grænu svæði. Frisbígolf truflar lítið aðra starfsemi enda spretta vellir víða upp í nágrannalöndum okkur en í Svíþjóð eru nú komnir 130 vellir og Finnlandi yfir 230 vellir sem flestir eru settir upp í almenningsgörðum. Hægt er að spila allt árið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation