Rusl í Reykjavík

Rusl í Reykjavík

Hreinsa rusl sem er út um allt í miðborginni (Reykjavík). Ekki flókið verkefni og ætti ekki að vera mjög dýrt. Reykjavík er því miður mjög skítug borg og það virðist ekki vera mikill metnaður í að hafa borgina okkar hreina. Mætti hafa nokkra starfsmenn sem t.d. eldri borgara sem langar í smá vinnu. Þeirra hlutverk væri að ganga skipulega um miðbæinn og gömlu höfnina og tína upp rusl.

Points

Viljum við ekki öll að Reykjavík sé hrein borg og að við séum stolt af henni.

Heyr heyr!

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information