Hjólstígar við Skipholt

Hjólstígar við Skipholt

Settar verði hjólaakreinar báðum megin við bílaakreinar meðfram Skipholti.

Points

Svigrúm er fyrir hólareinar meðfram gervöllu Skipholti þar sem rými fyrir bifreiðar er ónauðsynlega mikið miðað við að einungis eru tvær akreinar bifreiða á götunni. Eins og er þá er umferð reiðhjóla eftir götunni bundin við akreinar bíla, sem oft keyra hraðar en á 30 km hraða, eða gangstéttir. Þetta mundi leysa úr þeim vanda með ódýrum og einföldum hætti.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information