Fleiri grenndargáma til að flokka rusl, gefa föt o.fl.

Fleiri grenndargáma til að flokka rusl, gefa föt o.fl.

Það vantar grenndargáma sérstaklega í Vogahverfið þar sem t.d. gámarnir við Gnoðarvog sinna engan veginn öllum þeim íbúðum sem eru þar í kring.

Points

Tilvalið að setja grenndargáma við leikskólann Langholt og skátaheimili Skjöldunga (sem eru þar með dósa/flöskugám nú þegar). Þar rétt hjá er líka bókasafnið. Þarna er því nokkur umferð íbúa. Þetta myndi hiklaust auka endurnýtingu í hverfinu ásamt því að setja upp flokkunarruslatunnur eins og beðið er um í annarri tillögu hér.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information