Æfingatæki á lóð Hvassaleitisskóla

Æfingatæki á lóð Hvassaleitisskóla

Óska eftir að fá hreystitæki á lóð Hvassaleitisskóla. Hægt væri að nota það í íþróttakennslu á skólatíma, í frímínútum og vonandi hvetja krakka til að nota skólalóðina utan skólatíma. Mér finnst skólalóðin lítið notuð eftir skóla og á sumrin og er ekki ólíklegt að krökkum finnist lóðin lítið spennandi.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Gera skólalóð Hvassaleitisskóla meira spennandi.

Algjörlega fylgjandi þessari tillögu. Eftir að hafa átt börn í skólanum í 16 ár þá var það grátlegt þegar lóðin var tekin í gegn síðasta árið að leiksvæðið var endurnýjað þar sem það hafði verið endurnýjað áður. Eldri börnum skólans var meinaður aðgangur að því svæði og máttu gjöra svo vel að hafa malbikið fyrir augum alla daga. Það hafa ekki allir áhuga á boltaíþróttum eða hlaupleikjum. Það þarf að taka lóðina hinumegin fyrir og í gegn og hefur þurft í tugi ára. Góð hugmynd að framkvæma NÚNA!

EFLIR m.a. lýðheilsu nemenda og styrkir þol, sem veitir ekki af í nútímasamfélaga þessa allt of unga kyrrsetufólks !

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information