Flotbryggja á Kjalarnesi - viðkomustaður Akranesferju

Flotbryggja á Kjalarnesi - viðkomustaður Akranesferju

Setja upp flotbryggju á Kjalarnesinu sem getur tekið á móti ferjunni sem siglir upp á Akranes á sumrin. Áður fyrr gekk mjólkurbátur úr Hofsvíkinni til Reykjavíkur. Ferjan gæti þjónað bæði íbúum á Kjalarnesi og gestum sem eru að fara t.d. á Esjuna eða hugsanlega í golf í Brautarholti. Staðsetning gæti annaðhvort verið við þéttbýlið eða utarlega á Kjalarnesinu sem næst siglingarleið ferjunnar.

Points

Bætir mannlíf og lífsgæði á Kjalarnesinu, stuðlar að hagstæðari samgöngum íbúa á svæði, eykur fjölda ferðamanna á svæði, bætir nýtingu á sumarferju. Ferjan siglir oftast nokkuð nálægt ysta hluta Kjararnessins þar sem golfvöllurinn er og því er stopp þar ekki mikið úr leið.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Frábær hugmund!

Bara að fá einhverja bryggju myndi auka alla möguleika svæðisins og tómstundaiðju þeirra sem elska sjóinn. Hugsið ykkur, trillukarlar á Kjalarnesi. Nú ekki sakaði að fá ferjuna með í pakkanum. Takk.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information