Gangbraut að Krónunni við Höfða

Gangbraut að Krónunni við Höfða

Engin gangbraut er frá göngustígnum sem liggur upp Axarhöfðann, og yfir bílastæðið hjá Krónunni uppi á Höfða. Þeir sem fara gangandi í Krónuna eða hinar verslanirnar í byggingunni þurfa því að ganga yfir Axarhöfðann og yfir bílastæðið. Það er sérlega óhentugt og hættulegt með barnavagna og lítil gangandi börn, sérstaklega þar sem bílar keyra þarna oft mjög hratt og beygjan á veginum hindrar sýn ökumanna. Það myndi bæta margt að setja þarna gangbraut, og gera göngustíg alveg upp að búðinni.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi

Myndi bæta öryggi gangandi vegfarenda til muna.

Aðgengi að þessum verslunarkjarna fyrir gangandi vegfarendur er til skammar. Stígar litlir eða engir. Mikilvægt er að bæta gönguleiðina að kjarnanum.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information