Gangbraut / hraðahindrun við Seljaskógar að Hjallaseli

Gangbraut / hraðahindrun við Seljaskógar að Hjallaseli

Það er gangbraut þarna í dag og mikil umferð.Gangbrautin er ekki nógu vel merkt og allt of margir sem keyra þarna hratt í gegn. Krakkar að koma t.d. úr Engjaseli, Dalseli og B- selum á leið sinni í skóla. Það er hraðahindrun neðar í götunni og svo í miðri brekku. Oftar en ekki keyra bílar þarna fram hjá og stoppa ekki fyrir krökkum. Það er líka léleg lýsing á veturnar, þ.a.l. sjást gangandi vegfarendur illa. Sumarið 2017 keyrði bíll þarna út af.

Points

Öryggi fyrir krakka á leið í skólann. Mikil umferð þarna í gegn þar sem þetta er leiðin sem margir fara þegar það er á leið í leikskólann Hálsaskóg og í Seljaskóla.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Jafnvel bara að setja undirgöng

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information