Hundagerði við Vesturbæjarlaug

Hundagerði við Vesturbæjarlaug

Grasflöturinn bak við Vesturbæjarlaugina hefur undanfarin ár verið notaður töluvert af hundaeigendum. Gott væri að girða það af svo væri hægt að nota það sem hundagerði og maður gæti sleppt hundum lausum. Sorglega lítið er um aðstöðu fyrir hunda og hundaeigendur á höfuðborgasvæðinu og í takt við þær breytingar að leyfa þá í strætó og á kaffihúsum væri kjörið að fylgja því eftir og fá fleiri útisvæði.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Fáum gott og almennilegt hundagerði, nógu stórt til að hundarnir njóti þess að vera þar og byggt eftir hugmyndum félags ábyrgra hundaeigenda.

Ég tek undir allt sem Guðrún Halla Jónsdóttir skrifar.

Ég vil minna á að til þess að gerðið nýtist sem skyldi þyrfti stærð að vera að minnsta kosti um 1000 fm og að girðingin yrði helst um 1,60m á hæð. Það þarf að passa undirlag vel og koma fyrir anddyri svo það yrði minni hætta á að hundar slippi út úr gerðinu þegar nýr kemur inn. Hér er mikilvægt tækifæri til að gera hundagerði sem er ekki lýti á umhverfið heldur nýtist hundaeigendum vel og er fallegt að horfa á. Styð þessa tillögu og vona að hún verði vel framkvæmd!

Ég skil ekki í því að það sé ekki þegar gott hundagerði í 107. Löngu tímabært að koma því upp. Kærkomið, hvort sem það yrði útbúið við Vesturbæjarlaug eða annarsstaðar innan póstnúmersins.

Ath. að svæðið hefur einnig verið vinsælt hjá börnum og fjölskyldum sem nýta brekkuna sem sleðabrekku. Hugsanlega er hægt að koma báðu fyrir - er þó ekki viss.

Það þarf að gera ráð fyrir hundum og svæðum fyrir þá í borginni og þá ekki einhverjum litlum hundagerðum heldur svæðum þar sem þeir fá að hlaupa um og hreyfa sig. Hundeigendur greiða leyfisgjald til borgarinnar en fá lítið í staðinn. Hundaeign er orðin mjög almenn og því þarf borgin að laga sig að þeirri staðreynd í öllum hverfum borgarinnar.

Ekki hundaskitu svæði við Vesturbæjarlaug. Nei takk. Stækka ætti laugina og aðstöðu þar, þar sem ásókn er miklu meiri en hefur verið og það ætti að nota þetta svæði til að byggja fleiri laugar svo almenningur komist í sund, þó það sé skólasund.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information