Útikennslusvæði

Útikennslusvæði

Svæði þar sem hægt er að fara með börn úr leikskólum og skólum í Háaleitishverfi og stunda útikennslu og útieldun. Einfalt eldstæði með þaki, trjádrumbar sem borð og stólar og jafnvel eitthvað til að klifra í.

Points

Staðurinn sem hefur verið notaður er Svarti skógur fyrir neðan spítalann. Hann er frekar langt frá skólum og leikskólum. Útigangsmenn virðast líka vera búnir að taka hann yfir og hreiðra þar um sig og það passar engan veginn saman með skólastarfi.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Mér finnst nú heldur langt að fara með börnin alla leið uppá höfða til að fara í slíkar ferðir. það væri nær að finna þessu stað í fossvoginum eða jafnvel í skóginum við hlið Bústaðakirkju. Þar er fallegur skógur, alveg ónýttur.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information