Gangbraut fyrir aftan Krónuna Jafnarseli

Gangbraut fyrir aftan Krónuna Jafnarseli

Setja þarf gangbraut fyrir aftan Krónuna. Talsverð umferð kemur úr Sorpu og frá skíðabrekkunni og mikill umgangur gangandi og hjólandi vegfarenda er frá verslun yfir þessa götu.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem þetta verkefni er nú þegar á framkvæmdaáætlun. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Sammála, þarna er subbulegt og ekki vanþörf á að laga. Jafnframt því að steypa kantstein og gangstétt við Útvarpsstöðvarveg og Jafnasel frá Jaðarseli að hliði við Sorpu ætti að koma upp góðri götulýsingu á þessum kafla. Það myndi draga úr skuggastarfssemi sem þarna þrífst við núverandi aðstæður. Svo mætti tyrfa svæði að lóðamörkum við Krónu og iðnaðarhús og eins skíðalyftumegin.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information