Heitt vatn og heitan pott við stöndina

Heitt vatn og heitan pott við stöndina

Setja upp heitapotta einhversstaðar á strandlengjuna fyrir neðan Engja og Húsahverfi.(leiðrétt: Víkurhverfi) Pottarnir væru í gangi frá maí fram í sept. Fólk gæti notið strandarinnar á góðum dögum og grillað og haft gaman. Hægt að vaða í sjónum og skella sér svo í pott eða kannski heita vaðlaug.

Points

Já meina sem sagt á hentugum stað þarna t.d. fyrir neðan Víkuhverfi.

Ertu ekki að meina Staðahverfi, Víkurhverfi og Borgahverfi? Það er engin strandlengja við Engja eða Húsahverfi.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi aðila. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

😀

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information