Gangbraut yfir Holtaveg við Skipasund (Rangá)

Gangbraut yfir Holtaveg við Skipasund (Rangá)

Það þarf að breyta hraðahindrun yfir Holtaveg, við Skipasund, í gangbraut svo að gangandi vegfarendur fái forgang. Mikið af börnum ganga þarna yfir úr frístund (úr Glaðheimum) auk þess sem þau fara mikið þarna yfir í frítíma sínum. Bílstjórar eru alls ekki nógu duglegir að stoppa þarna fyrir gangandi vegfarendum, hvort sem það eru börn eða fullorðnir. Ég hef ítrekað orðið vitni af því að það er ekki stoppað fyrir börnum þarna.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information