Bíllausar götur!

Bíllausar götur!

Með fjölgun ferðamanna fjölgar bílaleigubílum og bílum í skipulagðri ferðastarfsemi í miðborginni. Ég legg til að nokkrar götur í miðborginni verði alltaf lokaðar bílum, allan ársins hring. Þá helst Skólavörðustígur og Laugarvegur.

Points

Ferðamenn hoppa oft inná veginn á Skólavörðustíg til að taka myndir, borgin væri öruggari og fallegri ef ekki væru bílar þar sem skemmtilegast er að ganga í borginni.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Sammála, það verður að taka þetta skref einhvers staðar. Hvað með Austurstræti, vestan Pósthússtrætis og Ingólfstorg? Er ekki kominn tími á að gera þetta svæði alveg bíllaust?

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information