Fleiri biðskýli við Lokinhamra í Hamrahverfi

Fleiri biðskýli við Lokinhamra í Hamrahverfi

Leið 31 gengur í Hamrahverfi. Þar taka börn hverfisins sem þurfa að komast í Foldaskóla og á íþróttaæfingar strætó. Biðskýlin eru mun færri en stoppistöðvarnar. T.d. er ekkert biðskýli í sunnanverðu hverfinu. Líklega mundi notkun á strætó úr hverfinu aukast ef gert yrði betur við notendurna.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Verðum að fá nægilega mörg biðskýli í takt við veðráttu landsins svona heilt á litið. Annað er veruleikafirring. Ef við viljum halda í strætómenningu almennt verður þetta að vera í lagi. Meginþorri strætófarþega er börn og eldri borgarar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information