Ræktum upp milli Stigahlíðar og Grænuhlíðar

Ræktum upp milli Stigahlíðar og Grænuhlíðar

Svæðið milli Grænuhlíðar og Stigahlíðar er í órækt og er lýti á hverfinu. Lagt er til að þessu verði snúið til betri vegar. Svæðið er nokkuð stórt. Hægt væri að hafa einhvers konar útivistarsvæði ásamt matjurtargörðum og öðru sniðugu þar sem göngustígur liggur gegnum svæðið (tengist við Stigahlíð 20 og fer milli Grænuhlíðar 9 og 11). Annars staðar þar sem aðgengi er minna væri hægt að rækta svæðið upp með fallegum trjágróðri.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna eða valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information