Sparkvöllurinn á opnu svæði á milli B - landa og G - landa

Sparkvöllurinn á opnu svæði á milli B - landa og G - landa

Sparkvöllurinn sem kallaður var Maló í gamla daga, og er fyrir neðan innstu raðhúsalengjuna í Búlandi, er í mjög lélegu ástandi. Djúpar holur hafa myndast fyrir framan öll mörk á vellinum og hann í raun hættulegur þeim börnum sem hann nota, en á sumrin er þessi völlur nánast í stöðugri notkun enda mikið af börnum í hverfinu. Taka þyrfti upp ónýtar torfur, slétta undirlag og tyrfa upp á nýtt svo ekki sé nú talað um að laga ástand markanna sem á vellinum standa. Þetta er sama hugmynd og einhver setti fram í fyrra með sömu rökum og þá.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Völlurinn er í slæmu ástandi, löngu kominn tími á endurnýjun. Styð þessa tillögu eins og síðast þegar hún var sett fram.

Vonandi nær þessi hugmynd kjöri núna, löngu tímabært að endurnýja völlinn. Synd að sjá hann grotna niður, nóg er af börnum í hverfinu til að nýta nothæfan völl á þessum stað.

Völlurinn er í mjög slæmu ásigkomulagi sem gerir það að verkum að hann er mjög lítið nýttur í dag sem er algjör synd þar sem hann er vel staðsettur. Það er engin spurning að völlurinn yrði vel nýttur ef hann yrði lagaður.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information