Lýsing á göngustíg við Ingunnarskóla

Lýsing á göngustíg við Ingunnarskóla

Göngustígurinn er fjölfarinn og kannski mest notaður af íbúum Ólafsgeisla, Kirkjustéttar og Þorláksgeisla þegar verið að ganga til og frá Ingunnarskóla, strætóstoppistöðvum, félagsmiðstöðvum, kirkju o.s.frv. Á veturna þegar það er hálka og dimmt úti – sem getur verið nokkra mánuði á ári - þá er hættulegt að fóta sig upp og niður þennan göngustíg sökum þess að lýsingu vantar alveg. Það er tímabært að bæta úr þessu og setja upp lýsingu á þessum stutta en mikið notaða göngustíg.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information