Hringtorg við gatnamót Þúsaldar og Vínlandsleiðar

Hringtorg við gatnamót Þúsaldar og Vínlandsleiðar

Bætt öryggi í umferðinni ef hringtorg sé sett upp á gatnamótunum. Kemur í veg fyrir að svínað sé fyrir ökutæki sem eru að koma inn Þúsöldina og leið upp í hverfið og svo öfugt. Hægir einnig á umferðinni sem veitir meira öryggi fyrir gangandi vegfarendur. Sjaldan er stoppað fyrir gangandi vegfarendum á þessum gatnamótum því ökutæki sem taka sjénsinn og troða sér á milli ökutækja óttast eflaust að fá ökutækið sem kemur aftan á sig. Ég nota þessa gatnamót mikið sem gangandi vegfarandi og sem ökumaður og það oft munað litlu á árekstri milli bíla. Einnig mjög óþægileg upplifun að vera gangandi vegfarandi og ökutæki keyra yfir götuna þótt að fyrsta skrefið sé tekið yfir á götuna.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information