Endurbætur á göngustíg frá Ystabæ að Árbæjarskóla

Endurbætur á göngustíg frá Ystabæ að Árbæjarskóla

Göngustígurinn sem liggur á milli húsaraðanna frá Ystabæ að Árbæjarskóla/Rofaborg er mjög illa farinn. Erfitt er að fara um stíginn á hjóli eða með barnavagna vegna þess hversu holóttur og mishæðóttur hann er og eins eiga fótgangandi til að misstíga sig á misfellunum. Byrjað var á endurbótum fyrir nokkrum árum en ekki hefur verið gengið í að ljúka verkinu. Miðað við hversu mikið stígurinn er notaður er mikilvægt að verkið verði klárað.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem þetta verkefni er nú þegar á framkvæmdaáætlun. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information