Ruslatínsla -

Ruslatínsla -

Íþróttafélögin eru sífellt að reyna að afla fjár með sölu á klósettpappír og slíku. Mín hugmynd er sú að börnin fengju ákveðnar götur í fóstur og sæju um að halda þeim hreinum og ruslalausum. Í staðinn fengi unga íþróttafólkið styrk til þess að halda á mót og þyrftu ekki að standa í þessu leiðindaprangi með hreinlætisvörur og lakkrís og hvaðeina.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Frábær hugmynd. Kennir þeim að hugsa vel um umhverfið sitt í staðin fyrir að vera stanslaust að hugsa um peninga og hver selur mest osfrv. Fyrir utan brasið sem fylgir því að keyra öllu þessu út eftir að það er selt :)

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information