Setja spegla á hættulega staði meðfram Gufuneskirkjugarði

Setja spegla á hættulega staði meðfram Gufuneskirkjugarði

Það er mikil umferð gangandi og hjólandi á göngustígnum meðfram Gufuneskirkjugarði. Þar eru nokkrir hlykkir á stígnum sem eru þannig að maður sér ekki ef einhver er að koma á móti. Þetta er bagalegt þegar hjólafólk (bæði reiðhjól og rafhjól) er á ferð og oft sem liggur við slysum. Þetta mætti leysa með að setja spegla á ljósastaura sem þarna eru fyrir og þannig er hægt að átta sig í tíma á því hvort það er hópur fólks dreifður yfir allan stíginn, fólk með hund í bandi (taumurinn þvert yfir stíginn) eða eitthvað slíkt.

Points

Auðvitað er enginn á fleygiferð þarna, en það skal haft í huga að hjól ferðast hraðar en gangandi :)

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information