Gangbraut yfir Hofsvallagötu við Reynimel

Gangbraut yfir Hofsvallagötu við Reynimel

Á Hofsvallagatagötu er mikil umferð og oft ekið hratt. Gönguljósin á horni Hringbrautar og Hofsvallagötu eru hættuleg og það er langt niður að næstu ljósum við Melabúðina. Mjög oft sjást börn og fullorðnir hlaupa yfir götuna á þessum kafla, t.d. til þess að komast á strætóstoppistöðina. Það myndi auðvelda fólki að komast yfir götuna ef gangbraut væri yfir Hofsvallagötuna við Reynimel, auk þess sem það myndi hægja á umferðinni á þessum kafla.

Points

Dregur úr slysahættu, hægir á umferð

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information