Leiksvæði á milli Jöklafoldar og Frostafoldar

Leiksvæði á milli Jöklafoldar og Frostafoldar

Til margra ára hafa verið þarna leiktæki og tún. Það þarf að taka það allt í gegn og gera umhverfið og tækin meira aðlaðandi og spennandi. Svæðið er stórt og væri hægt að gera það mjög fínt með endurnýjun s.s. með nýjum gróðri, nestisbekkjum og betri og meira spennandi leiktækjum. Það er töluverður fjöldi barna í hverfinu og tel ég að þau og fjölskyldur þeirra myndu njóta þess að eyða tíma sínum þarna á góðviðrisdögum ef svæðið hefði upp á meira að bjóða.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information