Gönguleiðir og grænsvæði

Gönguleiðir og grænsvæði

Ég mæli eindregið með því að gönguleiðir verði gerðar greiðar um alla miðborgina og þá sérstaklega niður á Granda. Þessar gönguleiðir mætti skreyta með blómum, litllum grasblettum og bekkjum. Við fáum svo mikið af gestum í miðborgina, verum gestrisin og tökum vel á móti þeim og sýnum þeim hvað við eigum fallega borg. Dæmi um gönguleið sem hægt er að taka mið af er highline park í New York

Points

Gera borgina öruggari, í dag er fólk víða að ganga í vegköntum, malarsvæðum og órækt

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information