Endurbætur á skólalóð Hlíðaskóla fyrir miðstig

Endurbætur á skólalóð Hlíðaskóla  fyrir miðstig

Endurbætur á skólalóð Hlíðaskóla Svæðið fyrir miðstigið á skólalóð Hlíðaskóla er óklárað. Hugmyndir hér eru tillögur nemenda skólans sem óska eftir litríku leiksvæði; mála París, pókó- og brenniboltavöll, setja niður leiktæki t.d. trambólín, útbúa taflmenn fyrir taflborð, setja upp hjólabrettaramp, skólahreystibraut, puttabrettavöll, aparólu og klifurvöll, lagfæra undirlag á körfuboltavelli, merkja fótbolta- og körfuboltavöll betur.

Points

Skólalóð lítur vel út fyrir yngsta stið en nemendur á miðstigi hafa ekki aðgang að þeim hluta skólalóðar. Rétt væri að gera svæðið fyrir þau meira aðlagandi.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information